
Við höfum unnið í trefjaplasti í yfir 30 ár. Þegar hlutur þarf að standa í sjó og raka í áratugi án viðhalds eru fá efni sem jafnast á við það — hér eru ástæðurnar.
Sjór, salt, klór og heitt vatn vinna ekkert á efninu.
Dregur ekki í sig vatn eins og timbur og steypa, svo frost og þíða hafa ekki áhrif.
Veðrun nær aðeins í ysta lagið. Flagnar ekki eins og málning og má fægja upp.
Eldist betur en stál, timbur eða steypa.
Liturinn er í gelcoat-húðinni sjálfri. Rispa afhjúpar sama lit.
Enginn sandblástur, engin sinkhúð, enginn málningarhringur.
Nýtt lag binst því gamla og verður jafn sterkt.
Óhreinindi festast illa og auðvelt er að þrífa.
1,8 á móti 7,85 tonnum á rúmmetra. Minni krani, léttari undirstöður.
Trefjarnar eru lagðar í þá stefnu sem burðurinn krefst.
Við smíðum mótin sjálf, frelsi til að hanna næstum hvað sem er.
0,3 W/mK á móti um 50 í stáli. Engar kuldabrýr í festingum.